juhúú..

Frábær næturvaktahelgi er að renna sitt lokaskeið...verð andlega vanheil á að vinna þessar vaktir..breytist alltaf í einhvern plebba!

Frændi minn fór á bíladaga um helgina og hafði bílaskipti við mömmu..ekki frásögufærandi nema hvað að hún ákv að fara í útilegu og fékk því minn bíl lánaðan sem þýddi bara eitt að ég var á bílnum hans Skúla sem er með mjög svo tregafullar læsingar og svo stórar rúður að maður var hálf berskjaldaður í umferðinni ..að mér fannst!

  Einnig fannst mér best að hafa fótbolta í aftursætinu ef ske kynni að ég næði að smala  saman í bolta og rosa töng í bílstjóragólfinu..maður veit aldrei hvað getur gerst!

...Ætla rétt að vona að minn maður hafi ekki verið sá sem var með rakettuna og spænt henni á lögguna!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það eru s.s viðburðarríkir dagar hjá þér væna mín...og kannski kostnaðarsamir líka!

Fanney (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 21:55

2 identicon

Hæ hæ sæta mín  Vonandi settir þú nú upp fallega brosið þitt fyrir myndartökuna í göngunum  Hvert er mútta annars að flytja??  Eru bara allir að yfirgefa Nesið yndislega??  Ætla að skella mér í dekur þangað um helgina

Knúsi knús úr Galtalindinni!

Sólveig (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband