17.9.2008 | 21:30
Bland í poka
Get svo svarið það að ég er engan veginn komin í haustgírinn..en það hlýtur að fara að skella í hús..það get ég svarið!
Sumarið búið að vera ótrúleg a ljúft þótt ég hafi svo sem ekki gert mikið af mér annað en að njóta mín í tætlur
Sumarið byrjaði að sjálfsögðu á því að hún nafna mín varð 1 árs
Algjör stuð bolti hleypur um allt og lætur hafa mikið fyrir sér..að sjálfsögðu!
Mamma flutti frá hinu fagra borgarnesi í júní og er búin að vera hjá mér en allt tekur þetta nú enda og er hún að fara að fá íbúðina sína sem er verið að græja í Mosfellsbæ..
meðan ég var að þrífa sólstofuna heima í nesinu þá var þessi mávur að fylgjast með mér allan tímann..hann var ugglaust að bíða eftir því að ég myndi strika fótur og detta út um gluggann,,,ég veit hann hefði bjargað mér-sumt veit maður bara!
Við Þóra skelltum okkur reglulega á skverið í borginni könnuðum lífið utan 111 og 110..það var fínt fórum oftast á Rex til að byrja með fengum 2 fyrir 1 ..áður en við könnuðum hina staðina
könnuðum oft hinar ýmsu blöndur!
Síðan voru Önnurnar að gifta sig með mánaðar millibili
Síðan skveraði ég mér til útlanda..tók bara bruna pakkann á þetta og flögnunarpakkann
Síðan var systursonur minn að byrja í ML litla krúttið og ég ekki einu sinni 30 ára....fjúff
Svona var sumar í stórum dráttum...keypti mé reyndar nýjan bíl..en það er líka eitthvað sem maður gerir reglulega,,allavega á svona tímum!
Nægt í bili..later
Athugasemdir
Alltaf í stuðinu..en hvernig var með kkmarkaðinn,var hann ekkert kannaður í sumar??
Stína stuð (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 14:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.