Færsluflokkur: Bloggar
5.12.2007 | 02:55
Get svarið það..
Það er ekkert grín að vera svín og keyra um á svo skítugum bil að það liggur við að fólk falli i trans við það eitt að mæta mér!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.12.2007 | 02:09
Facebook..
Undarlegt helv... skráði mig inn á þetta fyrir mörgum mánuðum bara til að geta fylgst með Hildi minni á króknum og skoðað myndir frá henni...en svo núna að undanförnu er fólk að adda mér inn eins og það eigi lífið að leysa...kann ekki rass í bala á þetta enda skoða ég bara myndirnar og sendi í mesta lagi Svönu 'múskara' línu...maður er 'notla' klikk!
Svo eru þessir alþingismenn...
Eyða tíma sínum í að velta sér upp úr orðinu Ráðherra nú eða hvort það eigi ekki að klæða nýbura í annað en bleikt eða blátt..
Mér finnst orðið ráðherra smart og ég myndi ekki vilja neitt annað en bleika eða bláa galla á fæðingardeildunum!
Þið sem þekkið mig vel vitið að ég er oftast ekki ein í íbúðinni mér til mikilla armæðu.Fólk segir að ég eigi bara að bjóða þetta velkomið og það geri mér ekki neitt!
Mér finnst þetta bara alls ekki velkomið og líður síður en svo vel með þessa gesti mína.
Sendi sálarrannsóknarfélaginu póst og þau sögðu mér að hafa samband því þau ætluðu að reka út hjá mér....ég hringdi að sjálfsögðu ekki...hreinlega þorði það ekki!
...En viti menn ég fór til miðills á Föstudaginn og það var hreint út sagt virkilega áhugavert. Hef alltaf verið frekar illa við svona hluti og reyndar bara skít hrædd við þetta en lét mig hafa það og sé ekki eftir því!
Margt áhugavert kom í ljós ýmislegt sem enginn veit nema ég....ótrúlegt!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.11.2007 | 21:23
Jólahvað..

...Við systurnar skelltum okkur í söru-bakstur í dag.
Byrjuðum reyndar í gærkvöldi og bökuðum örugglega rúml 300 sörur...sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Þannig að nú getið þið farið að droppa í kaffi því það er alveg pottþétt að ég á með kaffinu og til að toppa þetta alveg þá á ég kókoshringi líka...við erum frábærar!
Jólalög og jólabjór við hönd og kökurnar streyma úr ofninum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.11.2007 | 23:17
smartleiki.is
Varla ég tími að blogga yfir Herra ísland...fallegur!
Íbúðin mín í rúst og það er allt af mínum völdum.Þar sem ég fyllist brjálæðis öðru hvoru í því að breyta og þá meina ég breyta.
Skrúfaði hillusamstæðuna í sundur um daginn ein og óstudd og lagði einn skápinn á hliðina og hafði sem sjónvarpsskenk...mjög smart þangað til ég sá að skápurinn var farin að svigna undan sjónvarpinu.......ÞANNIG AÐ náttborðin eru inni í stofu undir sjónvarpinu...ekki eins smart.
Karl faðir minn þarf að gera sér ferð og reyna að koma þessu í sorpu svo þarf ég að fara að kaupa eitthvað undir sjónvarpið....íbúðin er eitthvað heldur ósmekkleg!
Svo er það bara jólaklippingin á morg og sörugerð með Heiðu systir..þannig að nú get ég farið að bjóða ykkur í kaffi og sörur-Ekki amalegt!
Later
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.11.2007 | 13:45
Herra Ísland...
Hvernig dettur þeim í hug að taka þátt í þessu,hugsaði ég með mér...ákv nú samt að horfa...fékk nú stundum nettan kjánahroll.
Kom mér vel fyrir í sófanum lá þar kylliflöt hálf slefandi að horfa á þessa eðal kroppa. Sumir voru gulir á litinn flestir brúnir ,sumir voru svo stæltir að þeir gátu varla gengið ,,,,svo fóru þeir að bera inn húsgögn frá Habitat...var ekki alveg að skilja það..en hvað um það,,ég þarf að fara að koma mér í Habitat,það er á hreinu!
En hann var óttalega sætur sem vann.Er frá Kópaskeri...það má segja að hann hafi komið Kópaskeri á kortið!
Voða sætur glókollur
Farin í habitat
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.11.2007 | 19:00
Sniðugt..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2007 | 20:34
Boston
Var fín.
Heppnaðist Blússandi vel fyrir utan kuldann ógurlega og Berglind varð eiginlega hundveik og talaði eins og hún væri uppfull af helíum...sem var ekki leiðinlegt
Maður gerir allt til að komast á klósett..þetta er ein ástæða
mun betra að fá 5 borgara heldur en 1
Later....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.11.2007 | 01:00
Jerimías
Allt að gerast eða hitt þó
Mútta tútta bauð okkur út að borða í gær á lækjarbrekku vorum 10 saman heljarinnar stuð og stemning svo skaust ég á eina næturvakt eða svo...
Núna er ég bara að klára næturvaktatörnina mína og ég verð sjúklega hamingjusöm þegar ég geng út af deildinni...þær eru dálítið ekki ég þessar næturvaktir!
Jólahlaðborð 8 des á Brodway
Jólatónleikar 8 des í laugardalshöll
Miðar komnir í hús og nú þurfa sumir að leggja höfuðið í bleyti
Vil ég láta Bjögga syngja í mig jólin og eiga frábæran sunnudag
Vil ég skemmta mér konunglega í góðra vina hópi langt fram eftir nóttu og missa úr einn sunnudag
Spr um að velja og hafna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.10.2007 | 21:33
Mary poppins..


Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)