Færsluflokkur: Bloggar
20.6.2007 | 13:31
...
Fór á myndina code name cleaner með Ingvari í gær og var hún hvorki leiðinleg né skemmtileg...hún var eiginlega meira svona miðlungs,,mæli ekkert frekar með henni.En ég var allavega í góðum félagsskap.
Svo vil ég óska Hrefnu og Helga til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn sem fæddist þann 18
úr þessum maga kom drengur 15 merkur og 52 cm. Til hamingju!
Svo er stefna tekin í þverárhlíðina á laugardaginn.Það er ættarmót og ætla ég nú ekkert að vera lengi bara svona rétt að sýna lit.Skrítið með þessi ættarmót sum eru skemmtileg önnur ferlega leiðinleg og þetta ættarmót væri alveg hægt að skipta í tvo hluta.Allir eru eitthvað svo ólíkir og ekkert endilega að ná saman..en ég meina það kemst engin upp með það að tala ekki við mig ég ætla að kaffæra öllum í gleði og hamingju og sýna þeim hvernig mannleg samskipti eru...svo fer ég bara.
Jæja 3ja vikna snúllan mín braggast vel...sjáið þið bara
ekkert lík mér..vonast nú samt að hún fái brún augu og dökkt hár skrítið nef litla groddara putta og nokkra sveipi í hárið.
later
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.6.2007 | 17:43
Sara
Ein falleg snót á afmæli í dag. hún er ekki nema 27 ára.hún er þroskanemi og á sér ekkert líf
Hún heitir Sara
Til hamingju með afmælið krútt!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.6.2007 | 01:17
Blússandi gleði!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2007 | 04:28
ZZZzzzz
Þoli ekki þessar næturvakti...Verð alveg hoppandi vitlaus af pirringi á að þurfa að vinna þær!
Er búin að lesa nokkur blöð og þegar það er frekar rólegt yfir öllu þá les maður allar greinar..þá meina ég allar..líka pistla eftir leiðinlegt fólk eins og Svein waage þar sem hann talar um kvenfólk og hvað þær mála sig mikið, hann segjir líka að sumir karlmenn hafa ekki séð konur sínar ómálaðar því þær vakna alltaf á undan karlpeningnum,þekki þetta ekki!
Ég var reyndar í pilsi heima um daginn leggings og ullarsokkum og leið bara nokkuð vel.En þegar til stóð að ná í fréttablaðið niður þá tvísteig ég þónokkrastund ,hvort ég ætti að taka áhættuna á að hitta engan...minnir að ég hafi skipt um klæðnað..Líka þegar ég vakna á morgnana þá fær hárið yfirhalningu,þvæ,blása og slétti..enga stund að þessu!
Ég er ekki viss um að ég myndi vakna á undan öllum til að yfirfara lúkkið...en að fara með ruslið og ná í fréttablaðið,,held það nú!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.6.2007 | 12:30
Tímabilið byrjað..
Já, Kóngulóar tímabilið er hafið í Vallarásnum og ég get svarið það að þessi kvikindi geta gert mig brjálaða,ef það kemur kónguló inn í íbúðina hjá mér þá fer ég að heiman..get ekki hugsað mér að ryksuga hana upp því ég er svo hrædd um að hún ráðist á mig.Þannig að þegar þetta tímabil byrjar þá kaupi ég alltaf leysigeisla og sprauta út um allt,í gluggakarmana á svalahandriðið...bara út um allt. Reikna með að kaupa 3 brúsa í sumar.
Fór í sveitina í gær og var það heldur betur ljúft. Þegar ég fór í bæinn í gærkvöldi þá gerðist nú ekki mikið á leiðinni nema ég sá bíl úti í kanti og bílstjórinn þurfti greinilega að kasta af sér vatni, upp á heiðinni sá ég lögguljós og löggu hálfa inni í skotti á bílnum sem þeir höfðu stoppað,nú stuttu seinna hjá skíðaskálanum klukkan 00:24 þá var ég stoppuð af löggunni,og ekki fyrir of hraðann akstur né voru ljósin í ólagi,,þeir voru bara að kanna aðstæður,hvaðan ég væri að koma.Mér fannst þetta nú frekar gróft og ef þeir ætla að fara að stunda þetta að stoppa bara hina og þessa þá verður maður nú að fara að taka sig til almennilega setja upp andlitið og passa upp á hárið...ég var ekki með hárið í lagi.
Annars þá eru tveir eðal menn búnir að eiga afmæli það eru..
Ingvar (stal myndinni af síðunni hjá Fanney)...svona eru þau alltaf!
Til hamingju með afmælin krútt!
Bloggar | Breytt 13.6.2007 kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.6.2007 | 12:03
Jæja fólk
Föstudagur í dag, ég í fríi til 13 júní
Borgfirðingahátíð um helgina,,,sleppi henni þetta árið!
Er með matarboð fyrir vinkonurnar annakvöld og þeirra makatutlur...
Eintóm gleði
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.6.2007 | 00:09
Puttalangar
Skrítið hvað fólk þó aðallega erlendir ferðamenn nenna alltaf að vera á puttanum,,,ótrúleg seigla! Ég man fyrir nokkrum árum þá þurfti ég að fara í bæinn og það var brjálað veður undir hafnarfjalli og ég keyrandi um á polo...ég tók einhvern fullvaxta karlmann upp í bílinn hjá mér bara að því að mig vantaði stöðugleika í bílinn,aðallega undir fjallið...en þetta mun ég aldrei gera aftur því mikið djöfull var maðurinn leiðinlegur,hann talaði alla leiðina-hann ætlaði hreinlega að drepa mig kall tutlan!
Annars er það að frétta að ég skellti mér á suðurlandið í dag og eyddi deginum á laugardalshólum í góðu yfirlæti.
Snúllurnar léku sér úti
Nú svo voru aðrir bara í góðu yfirlæti innandyra
Svo þegar ég yfirgaf samkvæmið þá...
Horfði þetta kvikindi á mig....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.6.2007 | 12:04
Pirripirr..
Stundum vildi ég óska þess að einhver myndi koma og ræna baðherberginu mínu eins og það leggur sig...Einnig mætti hann taka hillusamstæðuna mína líka,(samt ekki innihaldið) og ekki myndi ég svo sem gráta ef hann tæki eldúsborðið og sófaborðið!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.6.2007 | 14:38
Sjómenn
Hvað er það sem fólk sækist í..ekki er það veltingurinn,getur bara ekki verið.
Að sjálfsögðu eru það peningarnir og þetta er mjög erfitt djobb og ég dáist af sjómönnum að geta þetta...
Ég held að þeir sem fara á sjóinn séu að forðast eitthvað,hvað eru þeir að forðast?
Er það fjölskyldan,leiðinlega konan brjáluðu börnin,nágrannarnir.
Oft heyri ég hjá fólki sem hefur misstigið sig í lífinu og er að koma sér á beinu brautina að það ætli sér að komast á sjóinn...Hvað er það?
Viðtal við Lalla Jons um daginn og hann talaði um að þegar hann myndi losna út af Litla Hrauni þá myndi hann vilja fara sjóinn...
Ef mig myndi langa fara a sjóinn þá væri ég kannski ekkert til í að lenda með Lalla Jons ,Kalla Bjarna, Annþóri handrukkara, Einari Ágúst ogfl.
Veit um einn hann er á sjó í 2 mánuði og kemur heim í mánuð..uss,sumt fólk er bara klikkað!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.6.2007 | 00:01
Móðursystir!!!
Eitt augnablik hélt ég að Heiða gengi með steinfóstur þar sem hún var sett 18 maí, en að sjálfsögðu vildi konan verða eins og gemlingarnir á heimilinu og lét bíða eftir sér í heila 14 daga ..Til hamingju með það Heiða mín!
Það gerðist aðfaranótt 1 júní þá kom gullmoli suðurlands í heiminn rúm 17 merkur og 56 cm..og það var stelpa.
Til hamingju Heiða og Jói!
Þannig að nú á ég orðið 4 systkynabörn og ég er ekki orðin gráhærð og viti menn það glittir ekki einu sinni í gráu hárin..ekki einu sinni eitt ..og samt er ég 28 og hálfs...Smart!
Falleg eru þau...(ég á ekkert í þeim elsta)
Bara get ekki hætt...
Later
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)